Það eru engir töfrar – virkni foreldra skiptir máli

Virkir foreldrar er samstarfsverkefni Heimilis og skóla og SAMFOK sem var unnið í samvinnu við Rannsóknir og greiningu og SAMAN-hópinn með styrk frá Reykjavíkurborg. Verkefninu er ætlað að vera jákvæð skilaboð til foreldra og annarra uppalenda til að minna á hvað skiptir mestu máli í uppeldi og hina verndandi þætti í forvörnum. Verkefnið byggist á örmyndböndum á samfélagsmiðlum þar sem vísað er í rannskóknaniðurstöður Rannsókna og greininga.