Heimili og skóli – landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum og voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga.
Foreldrar og forsjáraðilar barna geta gerst félagar í Heimili og skóla sem og foreldrafélög, skólar og aðrir áhugasamir. Samtökin veita ráðgjöf til foreldra, skóla og foreldrasamtaka á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi og gefa út tímarit og ýmiss konar efni um menntun, uppeldi, forvarnir og foreldrastarf.
Heimili og skóli reka einnig SAFT netöryggisverkefnið en SAFT stendur fyrir Samfélag, fjölskylda og tækni og er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.
Á vefsíðu Heimilis og skóla eru ýmsar upplýsingar sem snúa að hlutverki foreldra og foreldrastarfi í skólum. Þar er meðal annars efni um Læsissáttmála Heimilis og skóla, Foreldrasáttmálann og Foreldrahandbókina.