Þegar kuldaboli nartar í kinnar og nef, er gott að komast inn í hlýjuna og fá sér heitt kakó eða súkkulaði!
Ekkert er þó betra en að gera það með ungunum okkar.
Drekkum kakó SAMAN!
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.