Kynnum okkur jólalög úr öllum áttum, klassísk gömul jólalög, jólakóra, glæný lög eða jólalög í nýjum búning.
Ræðum hvað okkur finnst gott og hvers vegna. Hlustum saman!
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.