6. desember

Notum tímann til að hitta vini og ættingja.
Styrkjum vina- og fjölskylduböndin, 
það er ekkert betra en að gera það -SAMAN

Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.