5. desember

Klæðum okkur í kuldaskónna, setjum upp húfuna, kíkjum í bæinn eða í kjarnann í hverfinu okkar og skoðum skreytingar, útstillingar í verslunum eða spáum í mannlífið. Munum bara eftir að fara eftir sóttvarnarreglum 🙂 
Röltum SAMAN!

Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.