Hvað er fallegra en að skoða stjörnubjartan himinn, spá í karlinum í tunglinu eða velta fyrir sér hvort tunglið sé úr osti, horfa á norðurljósin dansa á kolsvörtum himindúk eða sjá stjörnuhrap og óska sér?
-Það er að gera það SAMAN!
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.