Njótum þess að föndra og skreyta – Gerum huggulegt í kringum okkur eða tökum smá tíma til að búa til eitthvað nýtt. Gerum það SAMAN
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.
Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.