Veðurspáin fyrir daginn í dag er kanski ekkert svo spennandi! Við skulum bara vera sem minnst á ferðinni. Góð hugmynd í dag er t.d. að njóta þess að heyra í veðrinu úti og horfa á mynd SAMAN!
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.