14. desember

Förum út í náttúruna – eða bara í smá göngutúr um hverfið. Náum okkur í ferskt loft í lungun, leiðumst og njótum þess að vera til – Förum í göngutúr SAMAN!

Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.