Höldum í notalegar og fallegar hefðir. Það er fátt notalegra en að skera út laufabrauð við hugljúfa tónlist í félagsskap með uppáhalds fólkinu okkar!
Gefum tíma í desember – Njótum þess að vera SAMAN!
Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.