10. desember

Göngum um hverfið með eplakinnar og tökum góðan göngutúr til að skoða jólaljósin. Maður getur haft gaman að því alveg sama hversu gamall eða ungur maður er.
Skoðum ljósin í skammdeginu SAMAN!

Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg.