Sumar átak 2013
Eins og undanfarin ár minnir SAMAN-hópurinn á sig þetta sumarið. Áherslur SAMAN - hópsins í sumar eru að hvetja til samveru fjölskyldunnar. Birtar verða af og til í allt sumar hvatningar og auglýsingar í ýmsum vefmiðlum og ljósvakamiðlum til að vekja athygli á átakinu. Einnig er sent hvatningarbréf til sveitarstjórnaog gerð tilraun í einu bæjarfélagi með að dreifa smáum auglýsingaspjöldum á stærstu vinnustaði og í framhaldi verður metið hvernig viðtökur verða.
Birtar verða auglýsingar hópsins í borgarstöndum við helstu strætóstöðvar í höfuðborginni og sumarátakinu lokað með hnitmiðuðum skilaboðum vegna menningarnætur í Reykjavík í ágúst.
Öllum sveitarfélögum, frjálsum félagasamtökum og öðrum þeim sem vinna að forvörnum og sem vilja deila boðskap SAMAN - hópsins er velkomið að nýta það auglýsingaefni sem hér er að finna.


